UM LÓTUSAPP

Lótusapp er gjöf hugleiðsluskólans Lótushúss til íslensks samfélags. Það er von okkar að appið muni vera fólki hvatning til að staldra við í erli dagsins og næra og endurhlaða sjálfið. Við trúum því að slík iðkun hafi ekki aðeins jákvæð áhrif fyrir iðkandann heldur fyrir samfélagið allt.

Hugleiðslurnar geta hentað byrjendum jafnt sem lengra komnum. Þær eru sprottnar úr hugmyndafræði RAJA YOGA sem hefur það að markmiði að auka sjálfsþekkingu og draga þannig fram það besta í einstaklingnum.

Þegar innri kyrrð
fær að blómstra í sálinni
mun friður ríkja
í hug og heimi.

LÓTUSHÚS er hugleiðsluskóli á Garðatorgi i miðbæ Garðabæjar. Skólinn býður upp á hugleiðslu- og sjálfstyrkingarnámskeið allan ársins hring og hafa þúsundir Íslendinga nýtt sér starfsemi skólans.

Öll námskeið og viðburðir á vegum skólans eru þátttakendum að kostnaðarlausu. 

Nánari upplýsingar: www.lotushus.is

TÓNLISTIN er af geisladisknum Jewel Purpose frá Earthstar og má nálgast hana á Spotify.

MYNDIRNAR eru eftir Írisi Auði Jónsdóttur myndlistarkonu og voru málaðar sérstaklega fyrir Lótusapp.